Jújú haldið þið að maður sé bara ekki hættur að reykja!
"klapp á bakið" og bara nokkuð stolt af sjálfri mér get ég sagt ykkur
Þó hef ég nú oft reynt að hætta en hinsvegar aldrei séð ástæðu til þess að byrja ekki aftur! alltaf klikkað og nú fyrst er ég að sjá hvað hefur hingað til komið mér í sjoppuna og kaupa "einn" pakka svona til að reykja þegar ég fær mér gott rauðvín eða annað skemmtilegt og fljótandi
ÞAÐ er mjög einfalt........ ég vorkenndi svo sjálfri mér fyrir það að MEGA ekki fá mér eina! að aðrir gætu mjög auðveldlega fengið sér eina og ekki ég....... bu hu !!!!
Hinsvegar fékk ég heimsókn hingað frá góðri konu sem er svo sem ekki slæmt EN hún hinsvegar er með álíka slæm lungu og ég..... og 20 árum eldri líka!!! ekki gekk það nú neitt voðalega vel hjá henni að vera reykja ÞÓ hún væri nú bara að stelast ..... svona endrum og eins og reykir ekki að staðaldri !!
Frúin stóð á öndinni og ég endaði með að gefa henni asmapústið mitt sem ég var farin að nota ansi oft........
og þá fór nú að renna 3 grímur á kellu ...... ÉG verð svona þegar ég verð eldri........... !! jesús minn........ OG þessi reykti ekki eins mikið og ég!
Þannig að frúin fékk nóg og drap í .... OG eins gott því þetta var ekki til að bæta það
http://visir.is/article/20070829/FRETTIR02/70829080
og haldið ykkur fast áður en þið ýtið á linkinn og ekki kasta upp yfir skjáinn .......! það er sóðalegt!
heilsen HG